Samleið ~ Communities of Practice
Vinnustofur fyrir doktorsleiðbeinendur á Íslandi
Hagnýtar vinnustofur um leiðsögn doktorsnema með áherslu á miðlun þekkingar og reynslu þátttakenda.
Opnar öllum núverandi og væntanlegum leiðbeinendum, meðlimum doktorsnefnda, nýdoktorum og öðrum sem vinna með doktorsnemum.
Allir viðburðir eru á ensku og annað hvort netfundir eða blandaðir.
Verkefnið er fjármagnað af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Verkefnisstjórar eru Toby Erik Wikström, Háskóla Íslands og Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, Háskólanum á Akureyri.
Icelandic PhD Supervisor Workshops
Practical workshops on PhD supervision with emphasis on participants’ sharing of knowledge and experience.
Open to all current and prospective PhD supervisors, PhD committee members, postdoctoral scholars and others who work with PhD students.
All events are in English and either online or hybrid.
Funded by the Icelandic Ministry of Higher Education, Science and Innovation.
Project coordinators are Toby Erik Wikström (University of Iceland) and Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir (University of Akureyri).
Viðburðir 2026
Komum þeim í höfn:
Leiðir til að hjálpa doktorsnemum okkar að ljúka námi sínu
12. mars 2026
Frá kl. 12:00 til 13:00.
Blandaður fundur: Háskóli Íslands (Setberg 305), Háskólinn á Akureyri (Norðurborg) og Zoom. Skráning hér.
Viðmælendur
Felicia McCarren, prófessor í frönsku hjá Tulane University, New Orleans, Bandaríkjunum.
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði, Háskóla Íslands.
Viðfangsefni
Doktorsnám er langt og krefjandi ferli þar sem námstíminn getur orðið lengri, stundum talsvert lengri en lagt var upp með. Doktorsnemar hefja oft nám sitt með miklum krafti en geta misst dampinn þegar líður á námstímann og akademískar og persónulegar skyldur fara að hrannast upp. Á þessum hádegisfundi munu tveir reyndir leiðbeinendur deila bestu aðferðum sínum til að hjálpa doktorsnemum að komast yfir marklínuna.
Þátttakendur geta mætt á staðinn eða tekið þátt í gegnum fjarfund. Boðið er upp á veitingar fyrir þátttakendur á staðnum.
Events 2026
Getting Them Over the Finish Line:
Helping our PhD Students Complete Their Degrees
March 12 2026
From: 12:00 to 13:00.
Hybrid meeting: University of Iceland (Setberg room 305), University of Akureyri (Norðurborg) & Zoom. Register here.
Presenters
Felicia McCarren, Professor of French at Tulane University, New Orleans, USA.
Brynhildur Davíðsdóttir, Professor of Environment and Natural Resources at University of Iceland.
Subject
Doing a PhD is a long and grueling process with time to degree typically longer, sometimes much longer, than expected. PhD students often begin their programs with great energy but may run out of steam several years into their studies as academic and personal commitments begin to accumulate. In this panel, two experienced doctoral supervisors will share their best practices for preventing this slump and getting PhD students across the finish line.
Participants have the option of onsite or online attendance. Onsite attendees will receive lunch and coffee.
Að horfast í augu við hinn nýa veruleika doktorsnáms: skilvirkar aðferðir við að leiðbeina doktorsnemum á 21. öldinni
18. mars 2026
Frá kl. 12:00 til 13:15.
Blandaður fundur: Háskóli Íslands (Saga 277), Háskólinn á Akureyri (Norðurborg) og Zoom. Skráning hér.
Pallborðsumræður með:
Jan Allen, prófessor emerita og fyrrverandi varasviðsforseti kennslumála við Cornell University.
Steven Mintz, prófessor í sagnfræði hjá University of Texas–Austin.
Curt Rice, framkvæmdarstjóri, Fulbright-stofnunar Noregs.
Viðfangsefni
Leiðbeinendur doktorsnema standa í dag frammi fyrir háskólasamfélagi sem tekur miklum og hröðum breytingum. Það gerir það að verkum að hið mikilvæga hlutverk að leiðbeina doktorsnemum er meiri áskorun en nokkurn tíman áður. Tilkoma öflugra gervigreindartóla ásamt komu Z-kynslóðarinnar inn í doktorsnám gefur möguleika á að umbylta hefðbundinni leiðbeiningu doktorsnema. En hvernig ættum við að bregðast við þessa nýju umhverfi doktorsnáms? Þrír sérfræðingar munu velta þessum málum fyrir sér og fjalla um lykilatriði á borð við kynslóðabreytingar, stuðningi við skriftir og útgáfumál.
Þátttakendur geta mætt á staðinn eða tekið þátt í fjarfundi.
Boðið er upp á veitingar fyrir þátttakendur á staðnum.
Facing The New PhD Reality: Effective Practices for Supervising and Mentoring Doctoral Students in the 21st Century
March 18 2026
From: 12:00 to 13:15.
Hybrid meeting: University of Iceland (Saga 277), University of Akureyri (Norðurborg) & Zoom. Register here.
A roundtable with:
Jan Allen, Professor Emerita and former Associate Dean at Cornell University.
Steven Mintz, Professor of History at University of Texas–Austin.
Curt Rice, Executive Director at U.S.-Norway Fulbright Foundation for Educational Exchange.
Subject
Doctoral supervisors are confronted today with a rapidly changing higher education landscape which makes the vital activity of mentoring and supervising PhD students more challenging than ever. The advent of powerful AI tools, combined with the filtering of members of Generation Z into doctoral programs, has the potential to upend established models for PhD supervision. How do we react to this new PhD reality? An expert panel will grapple with the question, touching upon vital issues such as generational change, writing support and publishing.
Participants have the option of onsite or online attendance.
Onsite attendees will receive lunch and coffee.
Að takast á við flóknar áskoranir í leiðsögn doktorsnema
17. apríl 2026
Frá kl. 09:00 til 16:00.
Blandaður fundur: Háskóli Íslands (Setberg 305), Háskólinn á Akureyri (Norðurborg) og Zoom. Skráning hér.
Leiðbeinandi
Pirjo Nikander, Rannsóknastjóri hjá Miðstöð doktorsnáms, Tampere-háskóla, Finnlandi.
Viðfangsefni
Þessi vinnustofa er ætluð núverandi og framtíðar leiðbeinendum doktorsnema. Þátttakendur fá leiðbeiningar um hagnýtar leiðir til að stuðla að vellíðan doktorsnema og leiðbeinenda, fást við ágreining og skýra væntingar varðandi sameiginlegar birtingar.
Þátttakendur geta mætt á staðinn eða tekið þátt í fjarfundi. Boðið er upp á veitingar fyrir þátttakendur á staðnum.
Navigating Complexities in Doctoral Supervision
April 17 2026
From: 09:00 to 16:00.
Hybrid meeting: University of Iceland (Setberg 305), University of Akureyri (Norðurborg) & Zoom. Register here.
Facilitator
Pirjo Nikander, Research Director at University of Tampere Doctoral School.
Subject
Intended for current and prospective PhD supervisors, this workshop will equip participants with practical strategies for ensuring PhD student and supervisor wellbeing, managing conflicts and clarifying expectations regarding co-publishing.
Participants have the option of onsite or online attendance. Onsite attendees will receive lunch and coffee.
Aðferðir fyrir skilvirka leiðsögn doktorsnema
24. til 25. september 2026
Frá kl. 09:00 til 16:00.
Blandaður fundur: Háskóli Íslands (Setberg 305), Háskólinn á Akureyri (Norðurborg) og Zoom. Skráning hér.
Leiðbeinandi
Dr. Mirjam Godskesen, UNWIND Counsulting og Álarborgarháskóli.
Dr. Mirjam Godskesen er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fræðimaður og starfar jafnframt sem lektor í hlutastarfi við Álaborgarháskóla í Danmörku. Árið 2006 stofnaði hún fyrirtækið UNWIND, sem hefur stækkað í öflugt teymi með yfir sjö þjálfurum fyrir doktorsnema í hlutastarfi og einum ráðgjafa í fullu starfi. Dr. Godskesen miðlar reglulega fjölbreyttri reynslu sinni og þekkingu á alþjóðlegum vettvangi. Á hverju ári kennir og leiðbeinir Dr. Godskesen í yfir tuttugu námskeiðum fyrir doktorsnema og leiðbeinendur í Danmörku, á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu og nýlega einnig í Afríku og Asíu.
Viðfangsefni
Vinnustofan lætur starfandi og væntanlegum doktorsleiðbeinendum í té nýjar aðferðir og hagnýt verkfæri til að styðja við faglega, markvissa og árangursríka leiðsögn. Hún skapar jafnframt öruggt rými þar sem leiðbeinendur geta ígrundað eigið hlutverk og miðlað reynslu með samstarfsfólki frá íslenskum háskólum. Vinnustofan hentar jafnt leiðbeinendum með litla sem mikla reynslu. Kennslufyrirkomulagið leggur áherslu á gagnvirka þátttöku samhliða stuttum fræðilegum kynningum.
Að lokinni vinnustofunni munu þátttakendur hafa styrkt hæfni sína til að:
• Samræma sínar væntingar við væntingar doktorsnema frá byrjun og taka stöðuna reglulega varðandi markmið, framtíðaráform og fyrirkomulag samstarfs.
• Finna jafnvægi í leiðsögninni t.d. hvað varðar jafnvægi milli stuðnings og utanumhalds, náms sem afurðar og náms sem ferils og milli einkalífs og faglegrar leiðbeiningar
• Veita markvissa og uppbyggilega textaendurgjöf sem styður við vandaða fræðilega ritun.
• Efla sjálfstæði doktorsnema og ábyrgð þeirra á eigin rannsóknarverkefnum.
• Beita spurningar- og hlustunaraðferðum á árangursríkan hátt á leiðsagnarfundum.
• Styðja doktorsnema við verkáætlun og tryggja markvissa framvindu rannsóknar.
• Greina og bregðast við hugsanlegum áskorunum eða áföllum í námsferlinu.
Þátttakendur geta mætt á staðinn eða tekið þátt í fjarfundi.
Boðið er upp veitingar fyrir þátttakendur á staðnum.
Strategies for Effective Doctoral Supervision
September 24th to 25th 2026
From: 09:00 to 16:00.
Hybrid meeting: University of Iceland (Setberg 305), University of Akureyri (Norðurborg) & Zoom. Register here.
Facilitator
Dr. Mirjam Godskesen, UNWIND Consulting and Aalborg University.
Dr. Mirjam Godskesen is a freelance consultant and researcher who works as a part-time lecturer at Aalborg University in Denmark. In 2006, she founded the company UNWIND, which has since grown into a successful team, employing over seven part-time PhD coaches and one full-time consultant. Each year, Mirjam supervises more than 20 doctoral courses in Denmark, across Scandinavia, the rest of Europe, and, in recent years, also in Africa and Asia, sharing her knowledge and experience on an international level.
Subject
The workshop provides current and prospective supervisors with new strategies and practical tools to make doctoral supervision professional, effective, and enjoyable. It also offers a safe space for supervisors to reflect on their role and share experiences with other supervisors from Icelandic universities. The workshop is suitable for both new and experienced supervisors. The teaching form is highly interactive, combined with research-based short lectures.
At the end of the workshop, participants have enhanced skills on how to:
• Align expectations with doctoral researchers early and regularly regarding goals, ambitions, and forms of collaboration in the project.
• Balance conflicting needs in the supervision process, e.g., between support and structure, between product and process, and between being private and professional.
• Provide constructive text feedback to ensure high-quality academic writing.
• Encourage doctoral researchers’ independence and ownership of their projects.
• Apply questioning and listening techniques in supervision meetings.
• Assist doctoral researchers in project planning and support their progress.
• Manage potential crises in the doctoral researchers’ research journey.
Participants have the option of onsite or online attendance.
Onsite attendees will receive lunch and coffee.